Fulltrúar Heilabrota heimsóttu Center for Hjerneskade í Kaupmannahöfn, sem sérhæfir sig í taugaendurhæfingu fyrir fólk með heilaskaða og er leiðandi á því sviði í Danmörku. Við fengum kynningu á sögu starfseminnar, uppbyggingu og fjármögnun. Við fengum auk þess ítarlega kynningu á skipulagi endurhæfingarinnar og á tengslum við kennslu og rannsóknir í taugaendurhæfingu. Í heimsókninni var okkur boðið í skoðunarferð um stöðina og gafst okkur tækifæri til að sjá hvernig dagleg starfsemi fer fram hjá stofnun sem sýnt hefur framúrskarandi árangur í endurhæfingu eftir heilaskaða.
Center for Hjerneskade fjallaði um heimsóknina: Island vil lære af vores rehabilitering