Heilabrot heimsækir Graham Anderson House

Hópur frá Heilabrotum heimsótti Graham Anderson House í Glasgow en stofnunin er leiðandi í Bretlandi í endurhæfingu einstaklinga með alvarlegan hegðunarvanda eftir heilaskaða. Allir skjólstæðingar dvelja á stofnuninni og hluti endurhæfingarinnar fer fram í lokuðu úrræði. Við fengum kynningu á skipulagi endurhæfingarinnar, sem hefur skilað mjög góðum árangri.