Heilabrot á Headway House Basingstoke

Fulltrúar Heilabrota heimsóttu Headway House í Basingstoke. Samfélagsleg taugaendurhæfing þar fer fram í heimilislegu umhverfi og öflugur hópur sjálfboðaliða styrkir það einstaka starf sem þar er unnið. Heimsóknin veitti okkur dýrmæta innsýn í þá möguleika sem opnast með samstarfi fagfólks og sjálfboðaliða í heilaskaðaendurhæfingu.